Persónuvernd

Persónuverndarstefna okkar gildir um allar þær persónugreinanlegar upplýsingar sem fyrirtækið kann að safna gegnum vef okkar eða með öðrum rafrænum samskiptum.

Hákaup hlítir lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga . 

Lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga ná ekki til lögaðila.

Hákaup hefur persónuvernd og öryggi að leiðarljósi í allri meðferð upplýsinga um viðskiptavini sína og ber fyrirtækið ábyrgð á þeim gögnum sem fyrirtækið safnar.

Hákaup selur aldrei persónugreinanlegar upplýsingar um viðskiptavini sína.

Hákaup leitast við að takmarka vinnslu persónugreinanlegra upplýsinga og safnar ekki ónauðsynlegum upplýsingum um viðskiptavini sína né starfsmenn. Gildir það um heimsóknir á vef okkar og önnur rafræn samskipti.
Öll póstsamskipti Hákaup fara í gegnum GDPR og ISO-27001 vottaða pósthýsingu og öll rafræn gögn eru hýst innan Evrópusambandsins.

Leit